27. maí 2014

Það sem gerist í kollinum á manni...

...þegar maður fer einn út að hlaupa í hádeginu:

  • Ha, enginn annar að fara út að hlaupa?
  • Mmmm enginn annar að fara út að hlaupa :)
  • Þá ætla ég að fara stutt og rólega...
  • Vá hvað ég er að hlaupa hægt...
  • Er ég kannski að labba?
  • Kannski ætti ég bara að fara að labba...
  • Djók :)
  • Þarna er kona með hund...
  • Hann er laus...
  • Hann hleypur til mín og þefar af mér...
  • Hún kemur hlaupandi, fyrirgefðu...
  • Viltu ekki bara vera með hann í taumi?
  • Hundafólk, hmphh...
  • Oijjj þarna er hundaskítur...
  • Örugglega eftir lausa hundinn...
  • Kúkalabbar...
  • Nei, bíddu alveg öfugt...
  • Þeir sem labba með kúk?
  • Samviskusamir hundaeigendur?
  • Hahahhahaha
  • Ég er alla vega ekki kúkalabbi...
  • Hahahahhahah...
  • Hahahahhaaha...
  • ...
  • Komin...
4,75 km@5:35 pace.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli