Það hefur ekki farið fram hjá þeim sem þekkja mig að það var stór dagur hjá okkur á laugardaginn. Þórólfur hljóp heilt maraþon í Vorþoninu eftir góðan undirbúning. Hann hljóp af stað eins og engill, þurfti að berjast við vindinn og sjálfan sig, uppskar á endanum eins og hann sáði, með sigri og 13 mínútna bætingu á tímanum 2:56:19. Ég fékk að taka þátt í upplifuninni með honum á hliðarlínunni og hvatti minn mann, svo mikið að sumum fannst nóg um á stundum! Já, því líkur dagur.
Fyrir utan árangur míns manns, þótti mér sérstaklega ánægjulegt að sjá Sigríði Einarsdóttur sigra í maraþonhlaupi kvenna og fá að upplifa það að vera heiðruð fyrir vikið af viðstöddum. Það er nefnilega ekki alltaf þannig... Það er mér í fersku minni þegar sama kona sigraði Akureyrarmaraþonið 2009 en var látin taka við verðlaunum fyrir annað sætið í súrrealískri athöfn seinna um daginn. Fyrir þá sem ekki þekkja söguna þá má lesa mitt innlegg í pistli sem ég skrifaði þá, Nýju fötin keisarans.
Nokkrum mánuðum eftir hlaupið og bloggfærsluna, sem olli heilmiklu fjaðrafoki á sínum tíma, var úrskurðað í Akureyrarmálinu eins og sjá má hér og réttur sigurvegari staðfestur. Það sem sveið samt sárast var að sjá sigurvegarann sviptann heiðrinum og gleðinni við verðlaunaafhendinguna. Það var ekki hægt að bæta. Mér þótti þess vegna einstaklega vænt um að sjá sigurvegarann í kvennaflokki taka á móti sínum verðlaunum, undir dynjandi lófaklappi og ég upplifði að hringnum væri á einhvern hátt lokað núna fimm árum síðar.
Jæja, aftur að laugardeginum. Þeir sem standa að Vorþoninu eru upp til hópa miklir sómamenn og reynsluboltar og framkvæmd hlaupsins var að því er ég best veit hnökralaus og allir þátttakendur ánægðir.
Og þá er komin tími á afsökunarbeiðnina...
Eftir að búið var að hlúa að lúnum hlaupurum var komin tími til að veita verðlaun fyrir fremstu menn og konur. Í þessu dásamlega fallega umhverfi sem Elliðaárdalurinn er, með ánna niðandi og fuglana syngjandi var verðlaunaafhendingunni valin staður fyrir framan rauðan sendibíl. Við vorum nokkrir aðstandendur að mynda sigurvegarana í heilu og hálfu maraþoni sem vorum að spá í, okkar á milli, hvort ekki væri hægt að færa hana til, svona u.þ.b. þrjú skref til vinstri til að fá fallegri bakgrunn á mynd á þessari stóru stund.
Ég bar upp þessa bón, fyrir okkar hönd, við starfsmenn hlaupsins sem sáu um verðlaunaafhendinguna. Annar starfsmaðurinn gerði sig líklegan til að verða við óskum okkar þegar hinn, með þjósti, harðneitaði og var ekki haggað.
Ég er ansi hrædd um að tenging við söguna hér að ofan hafi ráðið þar mestu um og svo þessi pistill en andagiftina fékk ég eftir að hafa eytt kvöldstund í návist viðkomandi. Einu samskipti okkar síðustu árin eru nokkrar pínlegar verðlaunaafhendingar þar sem öðrum sigurvegurum er óskað til hamingju þegar þeir fá sín verðlaun afhent en ekki mér. Þrátt fyrir að ég taki það ekki nærri mér má velta því fyrir sér hvort ekki sé betra að velja manneskju í þetta tiltekna verkefni sem treystir sér til að koma eins fram við alla verðlaunahafa sem, jú borga sama gjald fyrir þátttöku og ættu að fá sömu þjónustu fyrir vikið. FM-arar mættu taka það til athugunar.
En alla vega, í hita leiksins, í kjölfar neitunarinnar, þá gerðist það áður en ég náði að stoppa mig. Ég lagði sem sagt til, að viðkomandi myndi fjarlægja prikið úr rassinum á sér eitt augnablik. Þó svo að þetta hafi verið sagt í léttum tón og með bros á vör, þá skammast ég mín. Maður á ekki að biðja einhvern um eitthvað sem maður veit að þeir eru ófærir um. Ég biðst afsökunar.
Það má svo með sanni segja að þessir heiðursmenn er jafn glaðir og glæsilegir fyrir framan rauða sendibílinn eins og...
...tveimur mínútum síðar með náttúruna í baksýn.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli