Fínir páskar að baki hjá okkur og við létum veðrið ekkert fara í taugarnar á okkur. Fórum í staðinn daglega í sund, ekki beint freistandi að vera úti annars... og svo drifum við okkur loksins, loksins í Bláa Lónið. Við unnum árskort í fyrra í einhverjum hlaupum og áttum eftir að virkja þau. Bogomil Font var með tónleika þegar við vorum þarna og krakkarnir skemmtu sér vel. Öll aðstaðan er náttúrulega allt önnur en í gamla daga en kuldaskræfan ég, mér finnst að það mætti aðeins fíra upp í hitanum á vatninu. Var alveg á mörkunum að líða vel í hlandvolgu vatninu og var fljót að finna mér heitan blett til að hlýja mér inn á milli. En alla vega áttum fínan dag og við förum örugglega bráðum aftur, tala nú ekki um ef sólin fer að skína á klakanum.
Annars vorum við heilmikið í matarboðum en á páskadag vorum við heima hjá okkur, kjarnafjölskyldan. Í ár breyttum við aðeins til og höfðum lambafillet að hætti bóndans í matinn, sætkartöflumús og hið ómissandi Waldorf salat, sem er aðalmáltíðin hjá mér á sparidögum, nammi namm.
Nú er allt komið á fullt í eldhúsframkvæmdum. Erum búin að fjárfesta í nýju eldhúsi sem við fáum afhent um miðjan maí. Nú erum við (Þórólfur :) að rífa niður gömlu innréttinguna, við þurfum að láta fjarlægja einn vegg, flota gólf og ég veit ekki hvað. Næstu vikurnar verður sem sagt útilegu stemmning á heimilinu en það er bara gaman, við verðum fljót að aðlagast því.
Annars er bara brjálað að gera í félagslífinu, saumaklúbbur, leikhús, vinnuskemmtun hjá mér, vinnuskemmtun hjá Þórólfi, hlaupaviðburðir, Verzló reunion og ég veit ekki hvað og hvað. Er þá bara að tala um næstu 2-3 vikur. Svo er ég að fara að detta í fertugt (jeiii... loksins) um miðjan mánuðinn og það er búið að skipuleggja eitthvað óvissu í kringum það, plús að ég ætla aðeins að halda uppá daginn sjálfan. Pjúff, þetta virðist koma í skorpum eins og annað og ég er ekki að sjá að ég komist yfir að vera með í öllu sem mig langar til. Þarf virkilega að setjast niður núna og velja og hafna, svo ég fari nú ekki alveg með mig :þ