Já nú er gamla konan glöð, var jafn ánægð með tímann minn í gær eins og ég var svekkt á mánudaginn. Hentaði mér fullkomlega! Vorum í heita salnum þannig að þetta var með Hot Jóga ívafi en í staðinn fyrir stöppuna á mánudaginn vorum við kannski svona 12 í salnum og bara konur, jeiii... Mjög ánægð með kennarann. Hún var jákvæð og skemmtileg, spilaði góða tónlist með æfingunum og leiðbeindi okkur í stöðunum og við æfingarnar. Nú hlakka ég til að mæta aftur og finn fyrir nýjum og ferkum harðsperrum hér og þar. Læfs gúdd.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli