Ég var með fordóma gagnvart Hot Jóga. Fyrir mér hljómaði Hot Jóga álíka spennandi og sjósund, mig langar ekkert til að prófa. Ímyndaði mér illa sveitta stinkandi kroppa í misjöfnu ástandi eins sardínur í dós... Samt er fullt af fólki að fíla þetta og nú í uppbyggingar fasanum hjá mér ákvað ég að sigrast á eigin fordómum og prófa, samt ekki alveg án þess að hafa vaðið fyrir neðan mig. Ég fékk að prófa lokaðan tíma á 6 vikna námskeiði í Hreyfingu og var þá búin að sjá fyrir mér nóg pláss þannig að eingin kæmist inn í mitt 'personal space'.
Skemmst frá því að segja að þessi tími uppfyllti allar mínar væntingar, því miður. Inn í pínulitlum sal var búið að stappa inn hátt í 40 manns og það voru ca. 5 cm á milli dýnanna. Í hópnum var fólk í mjög slæmu líkamlegu ástandi sem dæsti og kvartaði allan tímann, bæði yfir hita!!! og að þurfa að gera æfingarnar. Einn bað um talíu, það var smá fyndið. Ekki séns að einn leiðbeinandi geti sinnt öllum þessum fjölda og það byrjendum. Úff hvað ég var fegin að komast út. Ég er núna búin að skrá mig á annað námskeið sem er með fjöldatakmörkum og heitir Líkami og sál, en það er svokallað Body Balance/Body Vive æfingakerfi. Hljómar alla vega mjög vel og ég hef heyrt mjög vel af því látið fyrir þá sem þurfa að styrkja bak og core vöðva.
Sjósund... nei ég held ekki. Alla vega ekki nema ég fái mér 15 til 20 kg einangrun. Finnst engin tilhugsun hræðilegri en að skjálfa af kulda einhvers staðar, blaut í bikiní! Það hjálpar ekki að hugsa til þess að manni verði einhvern tíma aftur hlýtt.
Annars gladdi sonur minn mig óendanlega í gær. Hann kom heim frá ömmu sinni og afa í Norðurbrún, brosandi hringinn en hann hafði fundið í einhverju dóti, gamla Nike Air körfuboltaskó frá mér sem honum fannst alveg SJÚKLEGA FLOTTIR! Ég keypti þessa skó fyrir 15-20 árum síðan í USA, var nú ekki mikið í körfunni en fannst þeir töff. Notaði þá eitthvað pínulítið og einhverra hluta vegna hafa þeir sloppið við allar Sorpuferðirnar hjá þeim gömlu. 'Mamma, mamma, má ég eiga þá, PLÍS!'. Nú bíður hann eftir því að fæturnir stækki svo hann þurfi ekki að vera í 4 pörum af sokkum til að nota þá.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli