Helgin byrjaði með trukki, en ég fór í sundæfingabúðir hjá ÞríR á föstudagskvöld og laugardagsmorgun. Þeir Remí og Jackie leiddu okkur í allan sannleikann um hvernig maður getur náð árangri í skriðsundinu. Þeir sýndu okkur vídeó og svo vorum við látin púla í lauginni í tvo tíma í senn, báða dagana. Frábært að fá svona góða leiðsögn og nú hef ég fullt að hugsa um á næstunni.
Í dag bökuðum við piparkökur, skreyttum og hlustuðum á jólarásina á meðan:
Hérna náði pabbi einni af okkur óvænt...
Og þarna erum við búin að stilla okkur upp...
Enginn kvöldmatur nema þið séuð sæt saman...
Hvað get ég sagt, Bree lifandi komin...
Litli listamaðurinn eða málarameistarinn eins og hún segir.
Þvílík einbeiting!
Dæs...hvað þetta er flott :)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli