Við hjónin ákváðum að sleppa öllum keppnum þessa helgina og einbeita okkur að börnum, búi og hvíla okkur svolítið. Ég held að við höfum bæði vaknað alveg úrvinda í morgun, en ánægð eftir alla 'hvíldina'. En í hnotskurn þá leit rólegheitahelgin svona út hjá okkur:
Föstudagur eftir vinnu:
- Fengum vinkonu hennar Lilju í heimsókn.
- Fórum út með uppblásna barnasudlaug út í garð og fylltum af vatni.
- Tvær nágrannaskvísur bættust í hópinn.
- Og svo tvær vinkonur í viðbót.
- Inn með 4 stelpur (og eina mömmu :) og allar í bað (nema mamman) til að hlýja sér.
- Þurrka, gefa snarl og skila.
- Henda í eina, tvær þvottavélar.
- Elda og borða kvöldmat.
- Þrífa nýja hjólið :)
- Græja guttan í gistingu hjá ömmu og afa.
- Horfa á hálfa bíómynd með bóndanum.
- Vakna um 7 og fara að sinna dömunni.
- Baka hafrakökur handa strákunum.
- Fara út að hlaupa 18 km í roki og rigningu þegar pabbi fór á fætur.
- Þrífa aðeins heima eftir mat, því það var allt í rúst!
- Ná smá blundi þegar stelpan datt út af seinni partinn.
- Þvo eins grilljón þvottavélar.
- Líma brotið dót.
- Græja guttann í afmæli hjá vini sínum.
- Skrúfa í sundur vídeótækið og hreinsa það (leiðbeiningar á youtube :)
- Horfa á hinn helminginn af bíómyndinni!
- Taka á móti guttanum og koma honum í bólið (allt of snemma fyrir hans smekk).
- Hlupum saman 10,5 km.
- Þá skaust ég út og hjólaði 25,7 km, var orðin viðþolslaus...
- Bakaði 2 Sibbubrauð.
- Græjuðum Lilju í heimsókn til vinkonu hennar.
- Græjuðum Gabríel í leiðangur með afa á víkingahátíð í Hafnarfirði
- Fórum í Krónuna (barnlaus), aldrei þessu vant og keyptum inn.
- Í sund og synti 1500 m.
- Ná í stelpuna og fara með tölvuna upp í vinnu svo ég þurfi ekki að hjóla með hana á mánudag.
- Þórólfur fór að þrífa bílinn.Fylgjast með stelpunni leika út í garði.
- Undirbúa kvöldmat, sushi, lax og grill.
- Sauma rúllugardínuna inni hjá Lilju sem var búin að rakna upp.
- Finna til aukahluti á kerruna sem við lánuðum Karolínu og Przemek (hún er alveg að fara að eiga).
- Bjarga kvöldmatnum, sem var í fullum gangi þegar ég fór að hjálpa K+P.
- Sinna unglingnum sem er MJÖG krefjandi og skemmtilegur þessa dagana.
- Koma stelpunni í bólið.
- Fara út að hjóla með Þórólfi smá hring og kenna honum helstu atriðin í götuhjólreiðum.
Man ekki meira í bili en ég prísa mig sæla að það er þreföld keppnishelgi framundan í hjólreiðunum, það er sko pís of keik, miðað við að vera full time super mom... :þ
Engin ummæli:
Skrifa ummæli