Jæja þá er þetta ævintýri búið. Er búin að hjóla 170 km á þremur dögum og eina sem ég finn fyrir er að ég er máttlaus í hægri hendinni eftir gærdaginn... Ég hef ekki verið nógu dugleg að skipta um stöðu á stýrinu og hreyfa fingurna. Þetta er frekar fyndið, get ekki einu sinni borað í nefið á mér, en ég gat alveg hjólað þessa 66 km í dag, smá erfitt að skipta um gíra hægra megin en þetta er ekkert vont, bara máttlaus. Erfið leið í dag, þrír 21 km hringir í brekkunum í Grafningnum og svo var endamarkið langleiðina upp Nesjavallabrekkuna.
Við vorum þrjú sem héldum hópinn langleiðina, ég, Oddur og Emil. Emil tók af skarið í endasprett og hann endaði hálfri mínútu á undan mér. Ég kláraði á 2:34:13 og Oddur var svo einhverjum 5 mínútum á eftir mér. Þvílíkt puð að pjakka þarna upp og þá var eins gott að eiga aðeins eftir í lærabankanum. Ánægð með daginn og helgina. Var eina konan sem kláraði alla leggina, vann þá alla og skemmti mér konunglega!

Til hamingju með frábæran árangur!
SvaraEyðaÞú hlýtur að vera með stál í lærunum! Ég skal koma með næsta ár. Til hamingju!
SvaraEyðaSibba
Þú varst flott á nýja hjólinu. Til hamingju með árangurinn.
SvaraEyðaHamingjuóskir með þennan flotta árangur hjólasnillingur.
SvaraEyðaTakk fyrir :)
SvaraEyða