1. maí 2010

Kjóllinn

Lilja bað um bleikan prjónakjól eins og vinkona hennar var að fá og þá var bara að bretta upp prjóna-ermarnar. Fann uppskrift af krúttlegu vesti sem ég breytti aðeins og úr varð kjóll. Lilja hélt tískusýningu fyrir okkur og þá labbaði hún á táslunum: 'Mamma, er þetta ekki svona tískusýningar...?'.
Posted by Picasa

2 ummæli:

  1. Þú ert nú meiri prjónavélin. Svaka sætur kjóll. Katrín er að fá tvíburapeysu líka og bíður spennt eftir að máta.
    Nú verðum við að fara að ákveða næstu prjónasamkomu.

    SvaraEyða
  2. Ekki spurning, tökum stöðuna á æfingu á eftir.

    SvaraEyða