Hjólin voru græjuð í vikunni og í dag sveif ég í vinnuna, svo gott að vera laus við nagladekkin. Nú er bara spurning um að setja sig í hjóla keppnisgírinn líka, alla vega nóg í boði framundan.
Fyrsta góða hlaupaæfingin mín í mánuð í gær. Frábært að geta tekið á því án þess að hafa áhyggjur af heilsunni. Þarf samt greinilega nokkrar vikur í að komast á minn stað aftur. Skrýtið að halda ekki í við félagana sem voru á sama stað og ég fyrir nokkrum vikum... En það er bara skemmtileg áskorun að ná í skottið á þeim og heldur manni svo sannarlega við efnið.
Þar fyrir utan er ég aftur að verða gekt mjó eftir að hafa fitað mig aðeins í pestarveseninu.
Lífið er gott.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli