Hún Lilja okkar tók að sér að hýsa eina pestina enn, en það var líka sú síðasta fram að fermingu takk. Í veikindum heima er mikið horft á imbann og við vorum svo heppinn að fá lánaða nýja spólu, Ávaxtakörfuna, hjá vinkonu okkar. Myndin hafði mikil áhrif á hana Lilju og hún var alveg miður sín yfir því hvað ávextirnir voru vondir að leggja gulrótina í einelti. Mamma, mamma, við verðum að hringja í hana Franzínu mús! Ha... Ég fékk skýringar á því og eins sjá má hér!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli