Var sjanghæuð í að vera með í Lífstílsmeistaranum sem verður haldin næstu helgi í Kef. Tek hlaup og bekkpressu. Hlaupið er svo sem pís of keik en bekkpressan er eitthvað alveg nýtt fyrir mér. Búin að hafa 10 daga til að æfa mig. Í dag tókum við daginn snemma og mættum í Átak á æfingu. Fann loksins fyrir farmförum og reikna með að rúlla þessu upp. Það skal samt tekið fram að þessi orð eru skrifuð eftir einn eða tvo....
Annars bara að chilla á Akureyri með ástinni minni í árshátíðarferð. Nautasteik og súkkulaðifrauð. Breezer og tjútt. Læfs gúdd.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli