Fluginu í morgun var aflýst og þá var bara um að gera að skella sér í ræktina í staðinn.
Á meðan ég var á staðnum þá kom stór og stæðilegur maður, skellti sér á brettið og gerði sér lítið fyrir og bætti tíminn minn. Þá var mjög freistandi að prófa aftur, reynslunni ríkari...
Tíminn minn var 3:53
Nýi tíminn var 3:41
Í þetta sinn var ég mjög skynsöm og hljóp á jöfnum hraða allan tímann, gat svo aukið aðeins í lokin. Endaði á tímanum 3:46. Keppinautur minn var svakalega hamingjusamur með þetta, feginn að þurfa ekki að fara aðra lotu.
Kom í ljós að hann og konan hans eru Þrekmeistara reynsluboltar og eftir að ég var búin að pústa fékk ég leiðsögn hjá þeim í bekkpressu og önnur góð ráð. Cool.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli