Um daginn fórum við Gabríel að versla saman. Hann rak augun í jakkaföt á tilboði og vildi endilega máta. Þau voru allt of stór á hann og við skellihlógum í mátunarklefanum af spegilmyndinni sem blasti við. Allt í einu sagði Gabríel: 'Vá mamma nú sé ég það, við erum alveg eins!'.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli